Parketslípun.is
Um okkur

Upphaf þessarar parketþjónustu má rekja aftur til fyrsta október 1987 en þá hóf Logi Már Einarsson störf við parketlagnir og slípingar með Jóhannesi Kristinssyni sem var gamalreyndur í bransanum.  Árið 1991 byrjaði Bryngeir Jónsson svo að starfa með Loga og hefur það samstarf staðið síðan.  Logi starfaði undir eigin nafni fram til ársins 1997 en stofnaði þá einkahlutafélagið Alpark ehf en Bryngeir starfaði undir sínu nafni til ársins 2007 og stofnaði þá einkahlutafélagið Parketgæði ehf.  Á þessum tíma hafa viðskiptavinirnir verið margir og greinar viðskiptatrésins hafa dreift úr sér.  Höfum við haft þann háttinn á að starfa ýmist saman eða sitt í hvoru lagi eftir eðli og stærð verkefnanna sem hafa verið allt frá því að leggja og slípa minnstu rými upp í að leggja á íþróttahús, slípa þau og lakka.  Okkar áhersla hefur alltaf verið á að skila vinnu sem okkur er til sóma og við höfum gjarnan sagt að verk okkar séu okkar besta auglýsing.  Við notum aðeins þau efni sem við sjálfir erum sáttir við að nota og höfum góða reynslu af.  Aðalsmerki okkar hefur ávallt verið stundvísi og góð og snyrtileg umgengni á vinnustað.  Við höfum alltaf litið svo á að viðskiptavinurinn eigi ekki að þurfa að byrja á því að henda ruslinu sem óhjákvæmilega fellur til við okkar vinnu þegar hann tekur við verkinu og höfum því þann háttinn á að hreinsa okkar rusl burtu sjálfir. Viðskiftavinurinn á að koma að eins hreinu verki og eðlilegt getur talist þegar við höfum yfirgefið staðinn og geta treyst því að verktíminn sem lagt var upp með standist af okkar hálfu.